Fréttir /

Styttra kaupferli. Færri yfirgefnar körfur.

09.07.2026

Viðskiptavinur er með körfuna fulla og ætlar að klára kaupin. Hann er í símanum. Kortið er einhvers staðar annars staðar.

Þetta er staðan þar sem sala tapast. Ekki af því verðið var of hátt eða varan ekki nógu góð, heldur af því kaupferlið bað um sextán stafa kortanúmer, gildistíma og öryggiskóða, slegið inn á símaskjá og svo þarftu staðfesta með rafrænu skilríki hjá þínum viðskiptabanka. Hvert auka skref í kaupferlinu þýðir að fleiri hætta við.

10-30% fleiri klára kaupin með Apple og Google Pay

Munurinn er mælanlegur. Samkvæmt Adyen, greiðsluvélinni á bak við Straum, skila Apple Pay og Google Pay umtalsvert hærra hlutfalli kláraðra kaupa en hefðbundið kortaform. Hjá mörgum vefverslunum þýðir það 10–30% fleiri kláruð kaup, sérstaklega í síma. Og sífellt stærri hluti netverslunar fer einmitt fram í síma.

Ástæðan er einföld. Fólk notar Apple Pay og Google Pay daglega og gerir ráð fyrir að geta borgað eins í vefverslun. Greiðslan er staðfest með andliti eða fingrafari og engin kortanúmer eru slegin inn.

Styttra kaupferli með veflausnum hjá Straumi

  • Kort, Apple Pay og Google Pay innifalin frá fyrsta degi
  • Ein uppsetning, eitt greiðsluflæði
  • Uppitími síðustu 90 daga: 99,999%

Ef vefverslunin þín tekur ekki við greiðslum eins og viðskiptavinirnir vilja borga, þá er einfalt að laga það. Sendu okkur póst á straumur@straumur.is eða hringdu í 5856600 og við hjálpum þér að bæta kaupferlið á netinu.

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver Straums er opið alla virka daga 9 – 16