Fréttir /

Leitum af posaséníum í hlutastörf!

10.01.2025

Straumur leitar að jákvæðum, þjónustumiðuðum og lausnamiðuðum einstaklingum  í tímabundin hlutastörf. Helstu verkefni eru að skipta út posum fyrirtækisins hjá viðskiptavinum. Þetta er tilvalið tækifæri fyrir þá sem vilja skemmtilegt starf samhliða námi eða öðrum verkefnum.     

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Uppsetning og útskipti  á posum og greiðslulausnum .
  • Veita tæknilega aðstoð og leysa fjölbreytt verkefni þegar þau koma upp.
  • Veita framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina.
  • Greining og lausn á vandamálum í samstarfi við sérfræðinga Straums.
  • Önnur tilfallandi verkefni.

Hæfnis og menntunarkröfur:

  • Frábær þjónustulund og lausnamiðað hugarfar.
  • Sterk skipulags- og samskiptahæfni.
  • Hæfni til að tileinka sér nýja þekkingu hratt.
  • Njóta þess að vinna í hröðu, hópmiðuðu umhverfi.
  • Færni í bæði íslensku og ensku.
  • Bílpróf.

Straumur, dótturfélag Kviku banka, er íslenskt fyrirtæki í greiðslumiðlun. Straumur leggur áherslu á að vera leiðandi í fjártækni og veita framúrskarandi þjónustu. Starfsumhverfið einkennist af samvinnu og sveigjanleika, með áherslu á gildi Kviku sem eru hugrekki, einfaldleiki og langtímahugsun. 

Nánari upplýsingar veitir Lilja Ólafsdóttir, Framkvæmdastjóri Straums, lilja.olafsdottir@straumur.is.

Sótt er um starfið hér á umsóknarvef Kviku.

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver Straums er opið alla virka daga 9 – 16