Samstarfsaðilar Straums

Við leggjum áherslu á gott samstarf

Öll kerfin. Ein greiðslulausn.

Tengt við reksturinn þinn.

Við leysum flækjurnar svo þú getir einbeitt þér að rekstrinum. Straumur tengist helstu afgreiðslu-, bókhalds- og netverslunarkerfum á Íslandi og sér til þess að greiðslurnar flæði sjálfkrafa á milli kerfa. Hvort sem þú rekur verslun, veitingastað, netverslun eða þjónustufyrirtæki eru greiðslur samþættar ykkar kerfum.

  • Tengingar við helstu afgreiðslukerfi og bókhaldskerfi
  • Stuðningur við Shopify, WooCommerce og aðrar netverslanir
  • Sjálfvirkt greiðsluflæði og minna utanumhald

Byggt fyrir þróunarteymi

Byggðu greiðslulausnir á Straumi

Við höfum hannað þróunarumhverfið þannig að samstarfsaðilar geti innleitt greiðslur með lágmarks fyrirhöfn. Með Partner Key og Partner Webhook getur allt ferlið - frá því að söluaðili skráir sig þar til terminal er tilbúið - orðið sjálfvirkt.

Þetta þýðir:

  • Minni þróun. Minna viðhald
  • Hraðari innleiðingu
  • Betri upplifun fyrir sameiginlega viðskiptavini

Heimur samþættinga

Straumur + Adyen

Samstarf Straums og Adyen veitir þér aðgang að einu stærsta vistkerfi greiðslusamþættinga í heiminum. Auk þeirra lausna sem við bjóðum upp á á Íslandi getur fyrirtækið þitt nýtt sér hundruð alþjóðlegra samþættinga við leiðandi viðskiptakerfi, netverslanir og hugbúnaðarlausnir.

  • Hundruð alþjóðlegra tæknipartnera
  • Lausnir fyrir verslun, veitingarekstur, hótel og áskriftir

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver Straums er opið alla virka daga 9 – 16